Lögreglunni á Suðurnesjum var í gærkvöld tilkynnt um slys á tveimur ungabörnum í ótengdum málum. Annað barnið, þriggja mánaða drengur, féll úr bílstól og á innkaupakerru í fríhöfninni í Flugstöð Leifs Eiríkssonar.
Hitt barnið, telpa á öðru aldursári, féll fram úr rúmi og hlaut áverka við fallið. Kemur þetta fram í tilkynningu frá lögreglunni. Bæði börnin voru flutt með sjúkrabifreiðum á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja.