Árásarmaðurinn sá sami

mbl.is/Eggert

Sami karlmaður veittist að ungri konu á gatnamótum Vegmúla og Suðurlandsbrautar í hádeginu í gær og réðst á unga konu á Háaleitisbraut síðar í gær. Engin vitni hafa komið fram vegna fyrrnefnda atviksins.

Þetta segir Guðmundur Páll Jónsson lögreglufulltrúi við mbl.is. 

Hann segir að búið sé að ræða við manninn vegna atvika gærdagsins en ekki var hægt að gera það strax þegar hann var handtekinn vegna ástands hans.

Vitni að árásinni við Háaleitisbraut sagði í gær að hún hefði verið hrottaleg.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert