Sundlaugum lokað vegna eldingahættu

Loka þurfti sundlaugum á höfuðborgarsvæðinu vegna eldingahættu.
Loka þurfti sundlaugum á höfuðborgarsvæðinu vegna eldingahættu. mbl.is/Þorvaldur

Grípa þurfti til ráðstafana vegna veðurfarsins í höfuðborginni í kvöld, en þar var mikið um þrumur og eldingar. Loka þurfti sundlaugum á höfuðborgarsvæðinu vegna eldingahættu, að sögn slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu.

Þá upplýsir Neyðarlínan að þó nokkur símtöl hafi borist vegna þrumuveðursins, en fátt kallaði á útköll viðbragðsaðila.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert