Heiðursverðlaunahafi Eddunnar í ár er Egill Eðvarðsson, sem hefur starfað við íslenska sjónvarps- og kvikmyndagerð í hartnær 50 ár – og er enn að. Hann kveðst þó aldrei hafa leitt hugann sérstaklega að því að sjálfur ætti hann eftir að standa á sviðinu og taka á móti Eddu-verðlaunum.
„Ég hef oftast verið bak við tjöldin í beinum útsendingum frá Eddunni, allt frá þeirri fyrstu 1999, eins og svo mörgum stórviðburðum í áranna rás,“ segir Egill.
Hins vegar viðurkennir hann að hafa á stundum talað fjálglega um að ef ætti einhvern tímann að verðlauna hann fyrir eitthvað myndi hann afþakka það pent. „Það kom því vel á vondan þegar mér var tilkynnt í símtali hvað stæði til. Eftir smá umhugsunarfrest ákvað ég að ég vildi ekki vera leiðinlegri en ég er og að vitaskuld væri mér mikill heiður sýndur. Ef ég skil þetta rétt er verið að verðlauna mig fyrir gott ævistarf, en ekki bara af því ég er næstur á eftir Dunu (Guðný Halldórsdóttir, heiðursverðlaunahafi í fyrra) í stafrófinu.“
Dagskrárgerð og upptökustjórn hefur verið hans aðalstarfi, lengst af hjá RÚV, þar sem hann er nýhættur sem fastur starfsmaður samkvæmt aldursreglum ríkisins en starfar enn sem lausamaður.