Eldur kom upp í bifreið á Bústaðavegi

Slökkviliðið sendi einn bíl á staðinn og mikill eldur var …
Slökkviliðið sendi einn bíl á staðinn og mikill eldur var í bifreiðinni þegar þangað var komið. mbl.is/Eggert

Eldur kom upp í bifreið á gatnamótum Bústaðavegar og Litluhlíðar um áttaleytið í kvöld.

Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu varð leigubílstjóri var við eld í bifreið sem var fyrir framan hann á gatnamótunum, fór út og lét ökumanninn vita og hringdu þeir í viðbragðsaðila.

Slökkviliðið sendi einn bíl á staðinn og mikill eldur var í bifreiðinni þegar þangað var komið. Greiðlega gekk að slökkva eldinn og varð engum meint af. Bifreiðin er þó mikið skemmd.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert