Guðrún Nordal áfram hjá Árnastofnun

Guðrún Nordal, forstöðumaður Árnastofnunar, tók við skipunarbréfi til næstu fimm …
Guðrún Nordal, forstöðumaður Árnastofnunar, tók við skipunarbréfi til næstu fimm ára frá Lilju Alfreðsdóttur, mennta- og menningarmálaráðherra, í gær. Ljósmynd/Aðsend

Guðrún Nordal mun veita Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum forstöðu næstu fimm árin og tók við skipunarbréfi þess efnis í gær úr hendi Lilju Alfreðsdóttur, mennta- og menningarmálaráðherra. Guðrún hefur verið forstöðumaður stofnunarinnar frá 2009 og mun því gegna embættinu áfram. 

Staða forstöðumanns stofnunarinnar var auglýst 10. október sl. Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum er háskólastofnun sem hefur náin tengsl við Háskóla Íslands. Hlutverk hennar er að vinna að rannsóknum í íslenskum fræðum og skyldum fræðigreinum, einkum á sviði miðaldafræða, íslenskrar tungu og bókmennta, að miðla þekkingu á þeim fræðum og varðveita og efla þau söfn sem henni eru falin eða hún á. Guðrún tók við embætti forstöðumanns stofnunarinnar árið 2009.

Guðrún hefur gegnt margvísilegum trúnaðarstörfum í þágu íslensks vísindasamfélags, meðal annars verið formaður vísindanefndar vísinda- og tækniráðs (í ráðinu frá 2003) og stjórnarformaður Rannsóknasjóðs og Tækjasjóðs (seinna Innviðasjóðs) 2006-15, stjórnarformaður Nordforsk 2008-14, og í stjórn European Science Foundation 2006-15 og Fróðskaparsetursins í Færeyjum frá árinu 2017.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert