Loka svæði á Skógaheiði

Gönguleið ofan við Skógafoss hefur verið lokað af öryggisástæðum og …
Gönguleið ofan við Skógafoss hefur verið lokað af öryggisástæðum og til þess að vernda gróður umhverfis slóðann. mbl.is/Ómar

Umhverfisstofnun hefur tekið ákvörðun um að loka svæði á Skógaheiði, sem er hluti af gönguleið um Fimmvörðuháls, frá og með morgundeginum.

Lokunin nær upp frá Fosstorfufossi, sem er um 650 metrum ofan við útsýnispall við Skógafoss, og mun standa uns bót verður á ástandi svæðisins, samkvæmt því sem fram kemur á vef Umhverfisstofnunar.

„Vegna umferðar gesta, hlýinda og mikilla leysinga í kjölfar langvarandi frostakafla, hefur skapast gríðarlegt álag á gönguslóða og umhverfi hans á Skógaheiði ofan Fosstorfufoss. Umrætt svæði er gamall kindaslóði, hluti af gönguleið um Fimmvörðuháls sem hefur ekki verið lagaður að auknum fjölda ferðamanna,“ segir á vef Umhverfisstofnunar.

Lokunin er framkvæmd af öryggisástæðum í þágu gesta og einnig til þess að vernda gróður umhverfis gönguslóðann. Stefnt er að endurskoðun lokunar eigi síðar en innan tveggja vikna eða fyrr ef ástand breytist til batnaðar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert