Lögreglumenn í flugstöðvardeild lögreglunnar á Suðurnesjum höfðu afskipti af fjórum erlendum karlmönnum í Leifsstöð í vikunni vegna gruns um að þeir væru að reyna að komast með þýfi úr landi.
Mennirnir höfðu dvalið hér á landi í viku og voru grunaðir um að hafa stundað skipulagðan þjófnað.
Í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurnesjum segir að í handfarangri mannanna hafi fundist umtalsvert magn af meintu þýfi, aðallega dýrum merkjavörufatnaði, vítamínum og öðrum fæðubótarefnum. Mennirnir voru handteknir og færðir á lögreglustöð til yfirheyrslu áður en þeir héldu úr landi.