Vatnsleki á veitingahúsum í Austurstræti

Greiðlega gekk að ræsta vatnið úr húsnæðinu en einhverjar skemmdir …
Greiðlega gekk að ræsta vatnið úr húsnæðinu en einhverjar skemmdir munu vera á gólfefni. mbl.is/Eggert

Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins fór í tvö útköll vegna vatnsleka á sjötta tímanum í morgun. Um var að ræða leka vegna mikillar úrkomu og flæddi inn í kjallara tveggja veitingahúsa í Austurstræti í Reykjavík.

Greiðlega gekk að dæla vatninu úr húsnæðinu en einhverjar skemmdir munu vera á gólfefni, samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert