Fjaðrárgljúfri lokað í fyrramálið

Fjaðrárgljúfri verður lokað í fyrramálið.
Fjaðrárgljúfri verður lokað í fyrramálið. Ljósmynd/Fanney Gunnarsdóttir

Umhverfisstofnun mun loka Fjaðrárgljúfri í Skaftárhreppi fyrir umferð gesta klukkan 09:00 í fyrramálið. Um er að ræða gönguslóða meðfram gilinu.

Fram kemur á vefsíðu Umhverfisstofnunar að svæðið sé mjög illa farið vegna mikils fjölda ferðamanna, snöggra veðrabreytinga, hlýinda og mikillar vætu. Ákvörðunin er tekin með vísan til náttúruverndarlaga.

Um skyndilokun er að ræða sem mun standa í tvær vikur. Ákvörðunin verður síðar endurskoðuð.

Svæðinu var einnig lokað tíma­bundið í um tvær vik­ur í janú­ar vegna vætutíðar og ágangs.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert