Fundi slitið 5:21

Þorsteinn Sæmundsson var síðastur á mælendaskrá á Alþingi undir morgun.
Þorsteinn Sæmundsson var síðastur á mælendaskrá á Alþingi undir morgun. mbl.is/Hari

Eftir rúmlega fjórtán tíma fund á Alþingi var honum slitið klukkan 5:21 í nótt. Um var að ræða aðra umræðu um frum­varp fjár­mála- og efna­hags­ráðherra um meðferð krónu­eigna sem háðar eru sér­stök­um tak­mörk­un­um og gjald­eyr­is­mál. Voru það þingmenn Miðflokksins sem stóðu lengst í ræðustól.

Síðastur í ræðustól var Þorsteinn Sæmundsson, þingmaður Miðflokksins, en hægt er að hlusta á ræður þingmanna Miðflokksins hér.

Umræðunni verður framhaldið síðar í dag.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert