Dæmi um að átt sé við kílómetramæla í innfluttum bílum

Dæmi eru til um svindl í innflutningi bíla.
Dæmi eru til um svindl í innflutningi bíla. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Á undanförnum árum hafa komið upp tilvik þar sem innfluttir, notaðir bílar voru keyrðir mun meira en kílómetramælar þeirra sýndu.

Í umfjöllun um mál þetta í Morgunblaðinu í dag segir að blaðinu sé kunnugt um nýlegt dæmi um bíl sem fluttur var inn frá Evrópu og reyndist ekinn rúmlega þrefalt meira en talið var.

Kom það í ljós í þjónustuskoðun hér á landi. Í umfjöllun um málið í Morgunblaðinu í dag hvetur formaður Bílgreinasambandsins neytendur til þess að vera vakandi í viðskiptum sem þessum.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert