Kom að lokuðum dyrum með skurð á fingri

Fjölnir Sæmundsson, varaþingmaður Vinstri grænna, á Alþingi í dag.
Fjölnir Sæmundsson, varaþingmaður Vinstri grænna, á Alþingi í dag. Skjáskot/Alþingi

„Síðasta sumar reyndi ég að saga af mér puttann, reyndar ekki viljandi, það var óvart,“ sagði Fjölnir Sæmundsson, varaþingmaður Vinstri grænna, í ræðustól á Alþingi í dag. 

Fjölnir gerði heilbrigðisþjónustu í Rangárvallasýslu, eða skort á henni, að umfjöllunarefni sínu í umræðum um störf þingsins í upphafi þingfundar í dag. Þar rakti hann atvik þegar hann sagaði óvart í fingur sér þegar hann var staddur austur í Fljótshlíð. Næsta heilsugæsla var í tíu kílómetra fjarlægð. „Þar kom ég að lokuðum dyrum,“ lýsti Fjölnir sem hélt því för sinni áfram á næstu lögreglustöð þar sem honum var greint frá því að hann fengi ekki læknisþjónustu í Rangárvallasýslu eftir kvöldmat. 

Hefði þurft að vera dauður svo læknirinn sinnti útkalli

„Mér var reyndar sagt af lögreglumanninum að ef ég hefði verið meira slasaður hefði læknirinn komið og úrskurðað mig látinn, það væri það eina sem hann myndi gera eftir kvöldmat,“ benti Fjölnir á. 

„Ég fór því í sjúkrabíl 50 km leið á Selfoss, fram hjá heilsugæslunni á Hellu í leiðinni þar sem ég var saumaður saman,“ sagði Fjölnir, sem ferðaðist því um 60 kílómetra leið eftir læknisþjónustu. 

Fjölnir segir að ástandið hafi verið betra fyrir fimmtán árum þegar hann var búsettur í Fljótshlíð. „Þá var hægt að sauma mig saman allan sólarhringinn og alla mína fjölskyldu og bregðast við öllum mínum vandamálum. Ég get alveg fullyrt að heilsa fólks í Rangárvallasýslu hefur ekkert batnað mikið á þessum 15 árum og fólki hefur ekki fækkað, því hefur fjölgað, það eru fleiri ferðamenn. Þetta er sá staður á landinu þar sem hvað alvarlegustu umferðarslysin hafa orðið á undanförnum árum,“ sagði Fjölnir og vísaði í banaslys við Núpsvötn í desember þar sem tvær konur og eitt ungt barn létu lífið. 

Fjölnir segir þetta ástand ekki boðlegt fyrir íbúa á þessu svæði og þær þúsundir ferðamanna sem fara um Rangárvallasýslu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert