Mótmæli við Útlendingastofnun

Hópur flóttafólks á Íslandi er saman kominn við skrifstofu Útlendingastofnunar í Hafnarfirði til þess að mótmæla því að fólki sé vísað úr landi og aðstæðum flóttafólks á Ásbrú. Boðað var til mótmælanna á Facebook-síðunni Refugees in Iceland.

„Við höfum óskað eftir fundi með stjórnvöldum og hlusta [sic] á kröfur okkar, en eina svarið sem við fáum er þögn,“ segir í lýsingu á mótmælunum á Facebook.

Hópurinn fer fram á að brottvísunum úr landi verði alfarið hætt, að allt flóttafólk fái umsókn sinni framgengt í kerfinu, að flóttafólk á Íslandi fái atvinnuleyfi og jafnan aðgang að heilbrigðisþjónustu. Þá vill hópurinn að flóttamannabúðunum á Ásbrú verði lokað. 

Hópurinn mótmælti við skrifstofu Útlendingastofnunar í Hafnarfirði.
Hópurinn mótmælti við skrifstofu Útlendingastofnunar í Hafnarfirði. mbl.is/Eggert

Gunnar Hilmarsson, aðalvarðstjóri hjá lögreglustöðinni á Dalvegi í Kópavogi, segir í samtali við mbl.is að lögreglan hafi vitað af mótmælunum fyrir fram og sent lögreglu á staðinn til að sinna eftirliti. Mótmælin hafa farið friðsamlega fram og hefur lögreglan ekki haft afskipti af mótmælendum.

Sami hópur stóð fyrir mótmælum í brottfararsal flugstöðvar Leifs Eiríkssonar í síðasta mánuði þar sem mótmælin beindust gegn Icelandair sem hefur aðstoðað við brottvísanir flóttafólks.

Lögreglan er með eftirlit við Útlendingastofnun þar sem hópur flóttafólks …
Lögreglan er með eftirlit við Útlendingastofnun þar sem hópur flóttafólks hefur boðað til mótmæla. mbl.is/Eggert Jóhannesson
„Við höfum óskað eftir fundi með stjórnvöldum og hlusta [sic] …
„Við höfum óskað eftir fundi með stjórnvöldum og hlusta [sic] á kröfur okkar, en eina svarið sem við fáum er þögn,“ segir í lýsingu á mótmælunum á Facebook. mbl.is/Eggert Jóhannesson
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert