Stjórnstöð skimunar verði sett á fót

Frá fundinum í dag.
Frá fundinum í dag. mbl.is/Eggert

Embætti landlæknis og skimunarráð hafa skilað heilbrigðisráðherra tillögum að breyttu skipulagi á stjórnun, staðsetningu og framkvæmd skimana fyrir krabbameinum. Landlæknir telur framtíðarlausn á fyrirkomulagi þessara mála nauðsynlega svo skipuleggja megi skimanir til langs tíma.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá heilbrigðisráðuneytinu

Alma D. Möller landlæknir og Thor Aspelund, formaður skimunarráðs, kynntu Svandísi Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra tillögurnar á fundi í ráðuneytinu í dag. Skimunarráð er ráðgefandi fyrir embætti landlæknis og var skipað í apríl í fyrra í samræmi við tillögu ráðgjafarhóps sem vann að mótun íslenskrar krabbameinsáætlunar.

mbl.is/Eggert

Með tillögunum er verið að færa skipulag skimana nær því skipulagi sem mælt er með í leiðbeiningum Evrópusambandsins um skimanir. Tillögurnar fela meðal annars í sér að sett verði á fót stjórnstöð skimunar með víðtækt hlutverk sem felist meðal annars í því að skipuleggja og semja um framkvæmd skimana og sjá um innkallanir og upplýsingagjöf til þeirra sem boðaðir eru í skimun. Stjórnstöðin myndi jafnframt sinna rekstri Krabbameinsskrár í umboði landlæknis.

Skimunarráð tekur meðal annars fram í áliti sínu að það mæli með fyrirkomulagi þar sem ákvarðanir eru teknar í gagnsæju ferli, niðurstöður séu opnar og birtar reglulega. Ábyrgð á skimun sé samfélagsleg og njóti víðtæks stuðnings.

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra segir það mikilvægan áfanga að faglegt álit skimunarráðs ásamt tillögum embættis landlæknis um framtíðarfyrirkomulag skimana fyrir krabbameinum liggi nú fyrir, að því er segir í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert