Nánast allir verið hakkaðir

Frá ráðstefnunni í dag.
Frá ráðstefnunni í dag. Ljósmynd/Aðsend

„Það er ekkert öruggt í stafrænum netheimi, nánast allir hafa verið hakkaðir án þess að vita af því og fjöldi kreditkorta sem hafa verið hökkuð eru fleiri en öll útgefin kreditkort.“ Þetta sagði Pablos Holman, framtíðarfræðingur og fyrrverandi tölvuhakkari, á upplýsingaöryggisráðstefnu Opinna kerfa sem haldin var í dag á Grand hótel Reykjavík, að því er kemur fram í tilkynningu.

Umfjöllunarefni ráðstefnunnar var net- og upplýsingaöryggi á tímum aukinna netárása og tölvuglæpa en aukin notkun fyrirtækja, stofnana og einstaklinga á stafrænni tækni gerir þau í auknum mæli að skotmörkum tölvuhakkara.

Holman sagði að hakkarar væru frumkvöðlar í því að finna leiðir til að nýta tæknina og nefndi að hakkarar væru búnir að slökkva á rafmagni í borgum frá árinu 2003 og þeir muni halda því áfram. „Það sem máli skiptir er hvernig brugðist er við og hversu hratt er að hægt að koma því af stað á ný.“

Hann sagði stafræna tækni á endanum verða alltumlykjandi og það sé í höndum stjórnvalda að sníða ramma utan um þróunina. „Það er í höndum hvers og eins hvað hann setur á netið. Við megum ekki lamast af ótta vegna stafrænnar væðingar, þá verður ekki nein framþróun. Tæknin er komin til að vera. Við þurfum að vera meðvituð um veikleikana hverju sinni og nýta styrkleikana til að tryggja öryggi, endurræsa kerfið og halda áfram,“ sagði Holman einnig, samkvæmt tilkynningunni.

Auk Pablos Holman hélt erindi dr. Laura Galante, heimsþekktur bandarískur þjóðaröryggissérfræðingur. Hún hefur meðal annars rannsakað tölvuárásir Rússa á bandarísku forsetakosningarnar.

Einnig héldu framsögu Kristinn Guðjónsson, sérfræðingur hjá Google, Theodór Gíslason, öryggisráðgjafi hjá Syndis, Helga Þórisdóttir, forstjóri Persónuverndar, dr. Sigurður Emil Pálsson, formaður netöryggisráðs, og Jónas Ingi Pétursson hjá ríkislögreglustjóra. Helga Arnardóttir fjölmiðlakona stýrði fundi og pallborðsumræðum í kjölfar framsagna.

„Ísland er ekki eyja í netheimum. Ísland verður fyrir svipuðum netárásum og Bandaríkin,“ sagði Laura Galante í sínu erindi. Hún lýsti því hvernig bandarísk stjórnvöld urðu fyrir miklum netárásum árið 2010 af hálfu Kínverja án þess að nokkur hefði þekkingu eða reynslu að takast á við þær, þetta hafi verið „The Washington Secret“ í nokkurn tíma. Rannsóknin leiddi í ljós að deild innan kínverska hersins hafi staðið fyrir árásum á bandarískar varnarmálastofnanir og stolið mikilvægum og viðkvæmum hergögnum. Hún sagði jafnframt að þjóðríki gerðu í auknum mæli tilraunir til að komast yfir gögn annarra þjóðríkja til efla eigin hagkerfi og völd.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert