Tvískinnungur einkenni umræðuna

„Eigum við að vera griðland fyrir hvali eða ætlum við …
„Eigum við að vera griðland fyrir hvali eða ætlum við að drepa hvalina í kringum landið og flytja þá svo inn annars staðar að, jafnvel yfir hálfan hnöttinn?“ mbl.is/Eggert

„Hvað ætlum við að gera við hvalina, og hvali almennt? Ætlum við að drepa þá, éta þá, hneppa þá í kvíar eða gefa þeim grið?“ spurði Álfheiður Eymarsdóttir, þingmaður Pírata, í umræðum um störf þingsins í dag.

Álfheiður sagðist hafa verið hugsi vegna umræðunnar um hvalveiðar og innflutning á fersku kjöti. Hún sagði ákveðinn tvískinnung virðast einkenna ákvarðanatöku stjórnvalda í þessum málefnum og öðrum þeim skyldum.

„Nú stendur til að flytja tvo mjaldra til Vestmannaeyja frá Sjanghæ. Mjaldrar eru „beluga“-hvalir og það á að selja ferðafólki aðgang til að skoða þá í manngerðum kvíum í þar til gerðu hvalagriðlandi,“ sagði Álfheiður og að auðveldara virðist að flytja inn lifandi hvali frá Kína en gæludýr frá Evrópu.

Matvælastofnun og ráðuneytinu hafi ekki fundist það mikið mál en á sama tíma mætti ekki flytja inn kjöt frá Spáni. „Hvort ætlum við Íslendingar að standa að dýravelferð eða ferðaþjónustu? Hver á ímynd landsins að vera? Eigum við að vera griðland fyrir hvali eða ætlum við að drepa þá, drepa hvalina í kringum landið og flytja þá svo inn annars staðar að, jafnvel yfir hálfan hnöttinn? Þetta er ein umferðarþyngsta höfn landsins og verður lítið griðland fyrir vesalings hvalina þegar þeir koma.“

„Þetta minnir meira á dýragarð og ég veit ekki hvort um er að ræða dýravelferðar- eða ferðaþjónustuverkefni.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert