Tekjur kvenna 72% af tekjum karla

Meðalatvinnutekjur kvenna með háskólamenntun voru tæp 72% af meðalatvinnutekjum karla með sömu menntun, eða 6,7 milljónir króna yfir árið 2017 samanborið við 9,3 milljónir króna.

Meðalatvinnutekjur kvenna með menntun á framhaldsskóla- og viðbótarstigi voru tæp 65% af meðalatvinnutekjum karla, eða 4,1 milljón króna en tekjur karla voru 6,4 milljónir króna. Þá voru meðalatvinnutekjur kvenna sem voru eingöngu með grunnmenntun 3,2 milljónir króna, 69% af tekjum karla með þá menntun sem voru 4,7 milljónir króna.

Óleiðréttur launamunur kynjanna var rúm 15% árið 2017.
Óleiðréttur launamunur kynjanna var rúm 15% árið 2017. mbl.is/Kristinn Magnússon

Rúmur helmingur kvenna 25-64 ára var með háskólamenntun árið 2018, samanborið við rúmlega þriðjung karla á sama aldri. Um 27% kvenna og 41% karla voru með starfs- og framhaldsmenntun og rúmlega 20% kvenna og 24% karla voru eingöngu með grunnmenntun, segir í frétt Hagstofu Íslands.

Í dag er alþjóðlegur baráttudegur kvenna 

Atvinnuþátttaka kvenna var tæp 78% árið 2018, þátttaka karla var rúm 85%. Óleiðréttur launamunur kynjanna var rúm 15% árið 2017 en tæp 14% ef aðeins launafólk í fullu starfi er skoðað. Konur eru nú 38% alþingismanna og 47% kjörinna sveitarstjórnarmanna en í mörgum öðrum áhrifastöðum er hlutur kvenna lægri. Í byrjun árs 2019 voru konur 36% í stöðu framkvæmdastjóra sveitarfélaga og tæp 42% forstöðumanna ríkisstofnana.

Hæstiréttur. Af átta dómurum er aðeins ein kona.
Hæstiréttur. Af átta dómurum er aðeins ein kona. mbl.is/Ófeigur Lýðsson

26% stjórnarmanna fyrirtækja eru konur

Hlutfall kvenna af framkvæmdastjórum fyrirtækja var 22% árið 2017, 24% meðal stjórnarformanna og 26% stjórnarmanna. Af átta hæstaréttardómurum var ein kona en konur voru 38% héraðsdómara sem eru alls 42 og tæp 47% dómara í Landsrétti sem skipaður var 15 dómurum í árslok 2018.

Bæklingur sem Hagstofan hefur gefið út

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert