Dr. Hrefna Róbertsdóttir hefur verið skipuð í embætti þjóðskjalavarðar, að því er fram kemur í tilkynningu frá menntamálaráðuneytinu. Þjóðskjalasafn Íslands geymir stærsta safn frumheimilda um sögu og þróun byggðar og mannlífs í landinu og gegnir hlutverki sem framkvæmdaraðili opinberrar skjalavörslu og skjalastjórnar, auk þess að vera opinbert skjalasafn.
Hrefna lauk doktorsprófi í sagnfræði frá Háskólanum í Lundi árið 2008. Hún var áður sviðsstjóri á Þjóðskjalasafni Íslands, fyrst á skjalasviði og síðar varðveislu- og miðlunarsviði. Áður starfaði Hrefna hjá Þjóðminjasafni Íslands sem sviðsstjóri rannsókna- og varðveislusviðs, sem forstöðumaður Árbæjarsafns og settur borgarminjavörður og kennari við sagnfræðideild Háskóla Íslands.
Hrefna hefur þá komið að ritstjórn og útgáfu fjölmargra ritverka og sinnt margvíslegum félags- og trúnaðarstörfum. Hún hefur m.a. setið í framkvæmdastjórn Þjóðskjalasafnsins frá árinu 2009. Hún er núverandi forseti Sögufélagsins og var áður formaður Sagnfræðingafélags Íslands.