Lögreglan í Dublin reisti vegatálma í borginni á laugardag, þar sem síðast sást til Jóns Þrastar Jónssonar, og tók ökumenn leigubíla tali í von um að fá frekari vísbendingar um afdrif Jóns. Ekkert hefur spurst til hans síðan 9. febrúar.
Davíð Karl Wiium, bróðir Jóns Þrastar, segir að lögreglan hafi sýnt ökumönnum mynd af Jóni og spurt hvort þeir hafi séð til hans eða komist í kynni við hann.
Í dag mun hann funda með lögreglunni þar sem farið verður yfir gang mála, um hvað kom út úr aðgerðinni á laugardag og hvernig gangi að vinna úr þeim ábendingum sem hafa borist, að því er fram kemur í Morgunblaðinu í dag.