Von á meira bóluefni

mbl.is/​Hari

Von er á 1.000 skömmtum af bóluefni gegn mislingum á morgun til viðbótar við þá 3.000 skammta sem notaðir voru um helgina. Um miðja viku gætu bóluefnin komist í dreifingu. „Auk þess vinnum við að því að útvega meira bóluefni frá Evrópu en það er ekki auðvelt því það er mikil eftirspurn eftir þessu bóluefni og ekki margir aflögufærir,” segir Þórólfur Guðnason sóttvarnarlæknir.  

Engin ný mislingasmit hafa komið yfir helgina. Alls er búið að prófa um 50 manns. Fylgst er náið með þeim tugum manns sem eru heima hjá sér í sóttkví vegna gruns um mislingasmit á höfuðborgarsvæðinu og á Austurlandi. Ekki er vitað nákvæmlega hversu margir það eru. 

Þeir einstaklingar eiga að hafa samband við lækni ef þeir telja sig vera með mislinga og þá eru tekin sýni. Ekki er hægt að taka sýni fyrr en þeir veikjast og fá einkenni sem passa við mislinga vegna þess að þau geta gefið falska niðurstöðu.

Áfram verður unnið að því að bólusetja óbólusett börn frá 6 til 18 mánaða aldri sem og þá sem hafa ekki fengið neina bólusetningu. Börn á þessum aldri þurfa að fá tvær bólusetningar til viðbótar, við 18 mánaða aldur og 12 ára.  

Frekari upplýsingar um mislinga er hægt að skoða hér á vefsíðu Embætti landlæknis. 

Unnið er að því að fá meira bóluefni til landsins …
Unnið er að því að fá meira bóluefni til landsins í vikunni. Ljósmynd/Kristinn Ingason
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert