Þurfa að leita álits stofnana

Aurskriðan lokaði farvegi Hítarár og síðan hefur hún runnið framhjá. …
Aurskriðan lokaði farvegi Hítarár og síðan hefur hún runnið framhjá. Grafa þarf um 1,5 km í gegn um skriðuna til að opna aftur. mbl.is/Kristinn Magnússon

Skipulagsstofnun telur að framkvæmdir við endurheimt Hítarár í sinn eldri farveg með því að grafa hana í gegnum Skriðuna sem féll í vor sé tilkynningarskyld til Skipulagsstofnunar, samkvæmt lögum um umhverfismat.

Fram kom á fundi umhverfis-, skipulags- og landbúnaðarnefndar Borgarbyggðar fyrir skömmu að óski Veiðifélag Hítarár eftir að ráðast í þessa framkvæmd þurfi það að útbúa greinargerð um hana.

Í Morgunblaðinu í dag segir, að skipulagsstofnun mun leita umsagnar ýmissa stofnana áður en hún tekur ákvörðun um matsskyldu.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert