Vann rúma þrjá milljarða

Fyrsti vinningur í Víkingalottóinu gekk út í kvöld og situr einn heppinn vinningshafi að honum. Vinningurinn er ekki í minni kantinum en hann er rúmlega þrír milljarðar króna. Vinningsmiðinn var keyptur í Noregi.

Annar vinningur fer einnig til Noregs en hann hljóðar upp á rúmlega 36,6 milljónir króna. Þriðji vinningurinn, rúmar fjórar milljónir, gekk einnig út og var vinningsmiðinn keyptur á Ísafirði.

Tölur kvöldsins eru 8, 9, 15, 22, 31 og 32. Víkingatalan er 2.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert