Lýsa yfir árangurslausum viðræðum komi ekki fram nýjar hugmyndir

Undanfarnar þrjár vikur hafa samningaviðræður um nýjan kjarasamning SGS og …
Undanfarnar þrjár vikur hafa samningaviðræður um nýjan kjarasamning SGS og SA farið fram undir verkstjórn ríkissáttasemjara. mbl.is/​Hari

Samninganefnd Starfsgreinasambandsins samþykkir að komi ekki nýjar hugmyndir eða viðbrögð frá Samtökum atvinnulífsins á næstu dögum hafi viðræðunefndin fulla heimild til lýsa yfir árangurslausum viðræðum þrátt fyrir milligöngu ríkissáttasemjara og slíta viðræðum. 

Þetta kemur fram í tilkynningu frá SGS. 

Þar er tekið fram að undanfarnar þrjár vikur hafi samningaviðræður um nýjan kjarasamning SGS og SA farið fram undir verkstjórn ríkissáttasemjara. Forsendur viðræðna hafi verið umræða um nýja launatöflu, styttingu vinnuvikunnar, samræmingu á vinnumarkaði og fleiri atriði.

„Í viðræðum undanfarinna vikna hefur ýmislegt áunnist, annað þokast í rétta átt og sumt er óleyst og því virðist ekki vera lengra komist að sinni. Sú vinna sem hefur verið unnin er þó gagnleg og nýtist vonandi í framhaldinu.

Samninganefnd SGS samþykkir að komi ekki nýjar hugmyndir eða viðbrögð frá Samtökum atvinnulífsins á næstu dögum hafi viðræðunefndin fulla heimild til lýsa yfir árangurslausum viðræðum þrátt fyrir milligöngu ríkissáttasemjara og slíta viðræðum.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert