Vélsleðaslys á Hornströndum

Hinir slösuðu voru fluttir til Reykjavík með þyrlu Landhelgisgæslunnar.
Hinir slösuðu voru fluttir til Reykjavík með þyrlu Landhelgisgæslunnar. mbl.is/Árni Sæberg

Tveir voru fluttir með þyrlu Landhelgisgæslunnar á Landspítala eftir að vélsleðar rákust saman á Fossadalsheiði á Hornströndum en lögreglu barst tilkynning um áreksturinn rétt fyrir klukkan tvö.

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Ísafirði voru hinir slösuðu með meðvitund þegar þyrlan lagði af stað með þá suður til Reykjavíkur.

Ekki fengust nánari upplýsingar um líðan þeirra.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert