Skilti sett á styttu Jóns Sigurðssonar

Þegar ljósmyndari átti leið um Austurvöll í dag var búið …
Þegar ljósmyndari átti leið um Austurvöll í dag var búið að koma fyrir skilti á styttunni af Jóni Sigurðssyni. mbl.is/Eggert

Mótmælendur settu í dag skilti á styttu Jóns Sigurðssonar á Austurvelli, en hælisleitendur og flóttamenn hafa mótmælt þar alla vikuna. Á skiltið er búið að skrifa „I‘m surrounded by marvelous people,“ sem mætti útleggjast sem „ég er umkringdur undraverðu fólki.“

Sumir þeirra sem hafa mótmælt undanfarið hafa dvalið þar næturlangt í tjaldi sem reist var fyrir framan Alþingishúsið. Kröfur hópsins eru meðal annars þær að gera hælisleitendum auðveldara að fá leyfi til að lifa og starfa hér á landi og þá hafa þeir einnig mótmælt aðstöðu hælisleitenda og flóttafólks á Ásbrú. Sam­kvæmt yf­ir­lýs­ing­um munu þeir verða á Aust­ur­velli þar til ár­ang­ur næst.

Nóg um að vera við að rita skilaboð á skiltin.
Nóg um að vera við að rita skilaboð á skiltin. mbl.is/Eggert
Við tjald mótmælenda á Austurvelli í dag.
Við tjald mótmælenda á Austurvelli í dag. mbl.is/Eggert
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert