Sveinn Andri, Sigmundur og Rósa á Þingvöllum

Björt Ólafsdóttir, fyrrverandi umhverfisráðherra, fær til sín góða gesti á …
Björt Ólafsdóttir, fyrrverandi umhverfisráðherra, fær til sín góða gesti á Þingvelli í dag til að ræða Landsréttarmálið og þingstörfin sem fram undan eru.

Sveinn Andri Sveinsson lögmaður verður gestur Bjartar Ólafsdóttur í þjóðamálaþættinum Þingvöllum sem hefst á K100 klukkan 10. Munu þau ræða dóm Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evr­ópu í Landsréttarmálinu svokallaða sem féll í vikunni.

Í síðari hluta þáttarins mun Björt ræða við þingmennina Sigmund Davíð Gunnlaugsson og Rósu Björk Brynjólfsdóttur um framhald þingstarfa í kjölfar afsagnar Sigríðar Á. Andersen dómsmálaráðherra.

Hér er hægt að hlusta á Þingvelli. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert