Tveir fluttir með þyrlu eftir bílveltu

Óskað hafi verið eftir aðstoð þyrlu Landhelgisgæslunnar laust fyrir klukkan …
Óskað hafi verið eftir aðstoð þyrlu Landhelgisgæslunnar laust fyrir klukkan þrjú í nótt vegna bílveltu á Vesturlandi. mbl.is/Árni Sæberg

Tveir voru fluttir með þyrlu Landhelgisgæslunnar eftir bílveltu milli Ólafsvíkur og Rifs. Í tilkynningu frá Landhelgisgæslunni segir að óskað hafi verið eftir aðstoð þyrlunnar laust fyrir klukkan þrjú í nótt. 

Þyrlan tók á loft frá Reykjavíkurflugvelli skömmu síðar og sjúkrabíll flutti sjúklingana á flugvöllinn á Rifi en þar lenti TF-LIF um klukkan fjögur í nótt. Þyrlan flutti þá slösuðu til Reykjavíkur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert