83% hlynnt skattalækkunum tekjulægri

ASÍ segir vaxta- og barnabótakerfið í skötulíki miðað við það …
ASÍ segir vaxta- og barnabótakerfið í skötulíki miðað við það sem áður var. mbl.is/Hjörtur

Samkvæmt nýrri skoðanakönnun sem Gallup gerði fyrir Alþýðusamband Íslands eru 83% Íslendinga hlynnt því að launafólk með heildartekjur undir 500 þúsund krónum á mánuði fyrir skatt fái meiri skattalækkanir en aðrir.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá ASÍ. „Athygli vekur að stuðningur við slíka skattkerfisbreytingu er mikill í öllum aldurs- og tekjuhópum þó vissulega sé hann mestur hjá þeim tekjulægstu.“

„Þessi niðurstaða rímar vel við þær hugmyndir um skattkerfisbreytingar sem ASÍ kynnti í lok janúar. Markmið þeirra tillagna var að létta byrðum af fólki með lágar og millitekjur, auka jafnrétti og koma á sanngjarnari skattheimtu,“ segir í tilkynningunni.

Þegar ríkisstjórnin hafi kynnt sínar skattalækkunarhugmyndir hafi komið í ljós að sama skattalækkun ætti að ganga upp allan tekjustigann.

„Rannsókn hagdeildar ASÍ frá 2017 sýnir að skattbyrði hinna tekjulægstu hefur hækkað mest á undanförnum árum og dregið hefur úr jöfnunarhlutverki skattkerfisins. Munar þar mestu að skattleysismörk hafa ekki fylgt launaþróun og vaxta- og barnabótakerfin hafa markvisst verið veikt og eru nú í skötulíki miðað við það sem áður var.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert