Engin ný mislingasmit greinst

Bólusetning gegn mislingum hefur gengið vel.
Bólusetning gegn mislingum hefur gengið vel. mbl.is/​Hari

Engin ný mislingatilfelli hafa verið greind og er heildarfjöldi staðfestra tilfella fimm og eitt vafatilfelli. Alls hafa verið tekin sýni hjá um 80 einstaklingum á undanförnum vikum. Þetta kemur fram á vef embættis landlæknis

Öllu bóluefni sem kom til landsins hefur verið dreift til heilsugæslustöðva um allt land og má finna upplýsingar um framkvæmd bólusetninga á vef einstakra heilsugæslustöðva. 

Ekki hafa komið upp nein vandamál við framkvæmd bólusetninga svo vitað sé. Stöðufundur verður haldinn með umdæmis- og svæðislæknum í fyrramálið. Stöðufundir hafa verið daglega frá því mislingasmit greindist hér á landi í síðasta mánuði.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert