Góður andi í nýju húsnæði Bergsins

Sigurþóra Bergsdóttir, til vinstri, og Sigrún Sigurðardóttir standa að stofnun …
Sigurþóra Bergsdóttir, til vinstri, og Sigrún Sigurðardóttir standa að stofnun Bergsins. mbl.is/​Hari

Bergið Headspace, úrræði fyrir ungt fólk, verður til húsa á Suðurgötu 10 í Reykjavík en leigusamningur þess efnis var undirritaður í morgun.

„Við erum ótrúlega ánægð að vera búin að festa okkur húsnæði. Þetta er frábært húsnæði á góðum stað í bænum, með sérstaklega góðum anda og góðum leigusölum,“ segir Sigurþóra Bergsdóttir, einn af stofnendum Bergsins.

„En þetta er auðvitað ákveðið stökk og ákvörðun sem þurfti bara að taka,“ bætir hún við en leitin að rétta húsnæðinu hafði staðið yfir í hálft ár.

Mikilvægt að fólki líði vel 

Sigurþóra segir að lagt hafi verið upp með að fólki liði vel í húsnæðinu. „Við byggjum þetta svolítið á brjóstvitinu. Það þarf að vera gott aðgengi og hægt að koma með strætó, þannig að fólk upplifi að það verði ekki erfitt að koma.“

Úrræðið er svokölluð lágþröskuldaþjónusta sem byggir á Headspace sem er ástr­alskt úrræði fyr­ir ungt fólk. Slík­um miðstöðvum hef­ur meðal ann­ars verið komið upp í Dan­mörku. Hug­mynda­fræðin þar bygg­ist á því að ungt fólk á aldr­in­um 12 - 25 ára geti gengið að því sem vísu að eiga kost á því að leita til ein­hvers, sama hversu stór eða lít­il vanda­mál­in eru.

Bergið verður þverfag­legt mót­töku- og stuðningsúr­ræði fyr­ir ungt fólk þar sem í boði verður ein­stak­lings- og áfallamiðuð þjón­usta.

Skrifað var undir leigusamninginn í morgun á sama mánaðardegi og sonur Sigurþóru, Bergur Snær, framdi sjálfs­víg í mars árið 2016 eft­ir að hafa orðið fyr­ir kyn­ferðis­legu of­beldi. „Það er táknrænt að nota dagsetningu á versta degi lífs míns í að leggja drög að úrræði sem mun vonandi hjálpa ungmennum dagsins í dag og til framtíðar,“ skrifaði Sigurþóra fyrr í dag á Facebook-síðu sína. 

Húsnæðið verður afhent 1. apríl og kveðst Sigurþóra bjartsýn á að úrræðið verði opnað síðar í sama mánuði. Húsnæðið er tæpir 300 fermetrar með nokkrum viðtalsherbergjum og sameiginlegu rými. Hægt verður að styrkja verkefnið á næstunni en finna má nánari upplýsingar um það í Facebook-færslu Sigurþóru.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert