Með amfetamínvökva í rauðvínsflöskum

mbl.is/Eggert

Rannsóknardeild lögreglunnar á Suðurnesjum hefur til rannsóknar fíkniefnamál sem upp kom fyrr í mánuðinum þegar íslenskur karlmaður á sextugsaldri reyndi að smygla rúmlega einum og hálfum lítra af amfetamínvökva inn í landið.

Maðurinn var að koma frá Barcelona á Spáni þegar tollverðir stöðvuðu hann í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Í farangri hans voru tvær 780 millilítra rauðvínsflöskur sem reyndust innihalda amfetamínvökvann.

Maðurinn sætir nú gæsluvarðhaldi og miðar rannsókn málsins vel að því er lögreglan greinir frá í tilkynningu.

Lögreglan segir enn fremur, að ekki sé unnt að veita frekari upplýsingar að svo stöddu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert