Frestað að fella skorsteininn

Strompurinn stóri gnæfir yfir sementsreitinn.
Strompurinn stóri gnæfir yfir sementsreitinn. mbl.is/​Hari

Vegna veðurs verður skorsteinn, sem var hluti af Sementsverksmiðjunni á Akranesi, ekki felldur á fimmtudaginn eins og til stóð heldur verður því frestað fram á föstudaginn. Verður skorsteinninn feldur klukkan 12:15 þann dag.

Skorsteinninn verður felldur í tveimur hlutum. Þannig er gert ráð fyrir að efri hlutinn falli í suðaustur en sá neðri í suðvestur. Neðri hlutinn verður felldur nokkrum sekúndum eftir að efri hlutinn byrjar að falla. Rétt fyrir fellingu verður gefið hljóðmerki til að vara við upphafi aðgerðarinnar. Þegar hún er yfirstaðin verður gefið hljóðmerki á ný um að hættan sé liðin hjá. Öryggissvæði við fellingu er hringur í 160 m fjarlægð umhverfis skorsteininn en innan þessa svæðis má engin manneskja vera óvarin.

Verða íbúar í nokkrum húsum við Suðurgötu beðnir um að yfirgefa hús sín og íbúar þeirra húsa, sem eru innan öryggissvæðisins að því er segir á vef Akraneskaupstaðar en í tiltekinni fjarlægð frá aðgerðarstað, verða beðnir um að  vera í skjóli frá gluggum þegar felling verður. Hættan við svona aðgerð sé sú að það verði frákast, þ.e. fljúgandi steinar, þegar skorsteinninn fellur.

„Öryggisráðstafanir miðast m.a. við að eitthvað gæti farið öðruvísi en áætlað er. Umfram allt er það öryggi allra sem skiptir mestu máli. Björgunarfélag Akraness og lögreglan á Vesturlandi munu aðstoða við lokanir og eftirlit á svæðinu. Settir verða upp mælar til að mæla titring frá fallinu. Íbúar og vegfarendur eru beðnir um að virða öryggisreglur við fellingu skorsteinsins og einnig að hafa gætur á gæludýrum sínum.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert