Bæjarráð Hornafjarðar hefur samþykkt bókun þar sem sveitarfélagið krefst þess að áform um skerðingu tekna jöfnunarsjóðs verði afturkölluð þegar í stað. Í bókuninni er áformum fjármálaráðherra og ríkisstjórnar, að skerða framlög til Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga um a.m.k. 2,8 milljarða á árunum 2020 og 2021, harðlega mótmælt.
Sambandi íslenskra sveitarfélaga var tilkynnt á fundi með fulltrúum fjármálaráðuneytisins í síðustu viku að til standi að skerða framlög til Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga um 3,3 milljarða á næstu tveimur árum í ríkisfjármálaáætlun fyrir árin 2020-2024.
Í tilkynningunni kemur einnig fram að áætlað tekjutap sveitarfélaga á Suðurlandi af framlögum til útgjaldajöfnunar og vegna fasteignaskatts er tæpar 505 milljónir króna og 29 milljónir króna vegna málefna fatlaðra. „Framlög til málefna fatlaðra hafa ekki staðið undir rekstrarkostnaði og bætir þetta ekki stöðu þess málaflokks,“ segir í tilkynningunni.
Þá segir bæjarráðið ákvörðun um skerðinguna einhliða ákvörðun ríkisvaldsins og að hún sé í andstöðu við það formlega samráðsferli ríkis og sveitarfélaga sem hefur þróast á undanförnum árum.
„Fela áform þessi í sér algeran trúnaðarbrest gagnvart sveitarfélögunum í landinu. Ekki getur með nokkrum hætti talist eðlilegt að áhersla á að bæta afkomu ríkissjóðs skili sér í skerðingum á tekjum sveitarfélaganna, sem standa undir mjög stórum hluta almannaþjónustu í landinu,“ segir í tilkynningu.