Segja verkföll bara ná til félagsmanna

Félagsmenn Eflingar í kröfugöngu á verkfallsdeginum 8. mars.
Félagsmenn Eflingar í kröfugöngu á verkfallsdeginum 8. mars. mbl.is/​Hari

Verkfall Eflingar nær einungis til félagsmanna verkalýðsfélagsins. Þetta segja Samtök atvinnulífsins á vef sínum og ítreka að boðuð verkföll nái einungis til þeirra starfsmanna sem eiga aðild að þeim stéttarfélögum sem hafa boðað verkföll.

Félagsdómur hafi ítrekað staðfest þá túlkun og sú fullyrðing formanns Eflingar-stéttarfélags „að verkfall nái  jafnframt til starfsmanna í öðrum stéttarfélögum, eða jafnvel þeirra sem ekki eiga aðild að stéttarfélögum á sér enga stoð,“ að því er segir í tilkynningunni.

Það sé stjórnarskrárvarinn réttur einstaklinga að standa utan félaga og því eigi þeir starfsmenn sem ekki eiga aðild að Eflingu að sinna sínum störfum með óbreyttum hætti.

Minna Samtök atvinnulífsins þá á að stéttarfélögum og verkfallsvörðum sé lögum samkvæmt óheimilt að beita valdi við verkfallsvörslu, eða hindra lögmæta starfsemi. „Rísi ágreiningur um framkvæmd verkfalla heyrir hann undir Félagsdóm.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert