Látin líta út fyrir að tengjast barnaklámsrannsókn

mbl.is/Eggert

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu vekur á Facebook-síðu sinni athygli á því að henni hafi undanfarið borist tilkynningar um nýja gerð netglæpa. Að þessu sinni er í póstinum látið líta út fyrir að viðtakandi póstsins tengist rannsókn CIA á barnaklámi „og er pósturinn að því leyti frekar ógeðfelldur,“ segir í færslunni.

Um fjölpóst sé hins vegar að ræða og viðtakandi þurfi ekki að hafa áhyggjur af að póstinum fylgi óværa. Móttakendur hans eigi því ekki að bregðast við sendingunni.

„Hann er sendur til að vekja hræðslu í von um að fólk borgi af ótta en ekkert er hæft í efni póstsins og ef vel er gáð þá má sjá að pósturinn er upprunninn í Gabon, Mið-Afríkulýðveldinu, Malí eða öðru ríki og hefur ekkert með CIA að gera.

Auðvitað er óþægilegt að fá slíkan póst en við biðjum fólk að halda ró sinni,“ segir lögregla.

Fái fólk hins vegar slíka pósta biður lögregla það að áframsenda póstana til lögreglu á netfangið cybercrime@lrh.is eða í gegnum Facebook-síðu lögreglu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert