Fá lóðir fyrir 153 íbúðir

Framkvæmdir í Bryggjuhverfinu.
Framkvæmdir í Bryggjuhverfinu. Ljósmynd/Aðsend

Bjarg, íbúðafélag verkalýðshreyfingarinnar, og Búseti húsnæðissamvinnufélag fá lóðir fyrir 153 íbúðir í næsta áfanga í Bryggjuhverfinu. Bæði félögin eru óhagnaðardrifin húsnæðisfélög.

Þetta kemur fram í tilkynningu.

Borgarráð samþykkti á fundi sínum í dag að úthluta Bjargi íbúðafélagi tveimur lóðum og byggingarrétti í Bryggjuhverfi. Á lóðunum mun Bjarg hafa rétt til að byggja annars vegar 29 íbúðir og hins vegar 94 íbúðir, eða alls 123 íbúðir sem fara í langtímaleigu fyrir félagsmenn.

Þá fékk Búseti úthlutað lóð og byggingarrétti fyrir 30 íbúðir á sama stað.

Bjarg íbúðafélag er óhagnaðardrifið leigufélag og sjálfseignarstofnun sem er ætlað að tryggja tekjulágum einstaklingum og fjölskyldum á vinnumarkaði, sem eru fullgildir félagsmenn aðildarfélaga ASÍ eða BSRB, aðgengi að öruggu íbúðarhúsnæði í langtímaleigu, að því er segir í tilkynningunni.

Bjarg fær úthlutað lóð að Tangabryggju 1 þar sem heimilt verður að byggja 29 íbúðir í sérstæðum byggingum. Bjarg skuldbindur sig til að framselja sex íbúðir á lóðinni til Félagsbústaða á kostnaðarverði.

Þá fær Bjarg úthlutað lóð og byggingarrétti að Tangabryggju 5 þar sem heimilt verður að byggja 94 íbúðir í sérstæðum byggingum á sameiginlegri lóð.            

Bjarg mun framselja Félagsbústöðum 18 íbúðir á lóðinni á kostnaðarverði. Félagið fjármagnar uppbygginguna m.a. með stofnframlögum frá Reykjavíkurborg og ríkinu sem veitt eru á grundvelli laga nr. 52/2016.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert