Ingimundur úr stjórn Isavia

Ingimundur Sigurpálsson, stjórnarformaður Isavia, ávarpar aðalfund félagsins í dag.
Ingimundur Sigurpálsson, stjórnarformaður Isavia, ávarpar aðalfund félagsins í dag. mbl.is/​Hari

Ingimundur Sigurpálsson lét af embætti stjórnarformanns Isavia á aðalfundi félagsins sem fram fór í dag á Hótel Natura í Reykjavík. Ingimundur hefur verið formaður stjórnar Isavia undanfarin sex ár. Þetta tilkynnti hann í ávarpi sínu á fundinum.

Borin var upp tillaga að nýrri stjórn Isavia á aðalfundinum, þar sem Ingimundur var ekki á meðal fulltrúa, og var hún samþykkt af fulltrúa eina hluthafans, ríkisins.

Nýja stjórn Isavia skipa Orri Hauksson, Eva Pandóra Baldursdóttir, Matthías Imsland, Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir og Valdimar Halldórsson. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert