Dómurinn tjáningarfrelsinu í vil

„522 dögum eftir að lögbann var sett á umfjöllun Stundarinnar …
„522 dögum eftir að lögbann var sett á umfjöllun Stundarinnar og Reykjavik Media um viðskipti Glitnis og þáverandi forsætisráðherra hefur fallið endanlegur dómur Hæstaréttar tjáningarfrelsinu og upplýsingarétti almennings í vil,“ segir í yfirlýsingu fjölmiðlanna. mbl.is/Eggert

„Frelsið hefur sigrað“ er yfirskrift tilkynningar frá ritstjórum og aðstandendum Stundarinnar og Reykjavík Media í kjölfar þess að Hæstiréttur kvað upp dóm í lögbannsmáli þrotabús Glitnis á hendur fjölmiðlunum tveim.

„522 dögum eftir að lögbann var sett á umfjöllun Stundarinnar og Reykjavik Media um viðskipti Glitnis og þáverandi forsætisráðherra hefur fallið endanlegur dómur Hæstaréttar tjáningarfrelsinu og upplýsingarétti almennings í vil,“ segir í yfirlýsingu fjölmiðlanna.

Þar kemur einnig fram að dæmdur málskostnaður í málinu sé ekki nægilegur „til tryggja þá nauðsynlegu vörn sem þurfti til að forða ólögmætu lögbanni á sjálfsagða og mikilvæga samfélagsumræðu í þágu almannahagsmuna.“

Fjölmiðlarnir segja að þrotabúið hafi lagt mikið til dómsmálsins og segja að því hafi með „lagatæknilegum flækjum“ tekist að „tefja málið og reka það í gegnum öll dómstig á 522 dögum með tilheyrandi skaða fyrir blaðamennsku og rétt almennings til upplýsinga.“

Yfirlýsingu ritstjóra Stundarinnar og Reykjavík Media má lesa í heild sinni hér að neðan:

„Frelsið hefur sigrað

522 dögum eftir að lögbann var sett á umfjöllun Stundarinnar og Reykjavik Media um viðskipti Glitnis og þáverandi forsætisráðherra hefur fallið endanlegur dómur Hæstaréttar tjáningarfrelsinu og upplýsingarétti almennings í vil.

Stefnandinn, þrotabú Glitnis, fékk því framgengt fyrir tilstuðlan Sýslumannsins í Reykjavík að stofna til fyrirvaralauss dómþings á skrifstofu Stundarinnar og á heimili ritstjóra Reykjavik Media og stöðva umfjöllun um viðskipti þáverandi forsætisráðherra landsins 12 dögum fyrir alþingiskosningar.

Þrotabúið lagði mikið til dómsmálsins gegn fjölmiðlunum tveimur. Aðstöðumunurinn er verulegur. Hann birtist í því að aðeins laun forstjóra Glitnis HoldCo ein og sér eru hærri en samanlögð velta Stundarinnar og Reykjavik Media, samkvæmt nýjustu aðgengilegu tölum. Ljóst er að stuðningur almennings skipti sköpum í málinu og málsvörninni.

Með lagatæknilegum flækjum tókst þrotabúinu að tefja málið og reka það í gegnum öll dómstig á 522 dögum með tilheyrandi skaða fyrir blaðamennsku og rétt almennings til upplýsinga. 

Lögbannsmálið í heild sinni hefur án efa haft fælingaráhrif á fólk í samfélaginu sem hefur undir höndum upplýsingar eða gögn sem eiga mikið erindi til almennings sem það vill koma til fjölmiðla í krafti réttlætiskenndar. Þrotabú Glitnis reyndi hvað eftir annað að fá að taka skýrslu af blaðamönnum um heimildarmenn en á öllum dómstigum var því hafnað. Í dómnum er skýrt kveðið á um vernd heimildarmanna og það með mjög afgerandi hætti. Við viljum hvetja fólk sem hefur undir höndum mikilvægar upplýsingar sem varða almenning að leita til okkar. 

Dæmdur málskostnaður nægir ekki til þess að tryggja þá nauðsynlegu vörn sem þurfti til að forða ólögmætu lögbanni á sjálfsagða og mikilvæga samfélagsumræðu í þágu almannahagsmuna.

Eftir stendur að brotið var gegn upplýsingarétti almennings og þar með vegið að réttinum til frjálsra kosninga. Aðstandendur Stundarinnar og Reykjavik Media vonast til þess að þessi dómur, og þeir sem hann staðfestir, standi sem bautasteinn til framtíðar með varðstöðu um upplýsingarétt almennings og frelsi fjölmiðla.

Fyrir hönd Stundarinnar: 

Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir

Jón Trausti Reynisson

Fyrir hönd Reykjavik Media:

Jóhannes Kr. Kristjánsson“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert