Minni háttar slys er bíll fauk út af

Slys voru minni háttar á fólki er bíll fauk út …
Slys voru minni háttar á fólki er bíll fauk út af þjóðveginum undir Eyjafjöllum í dag. mbl.is/Kristinn Magnússon

Minni háttar slys urðu á fólki þegar bíll fauk út af veginum og valt rétt austan við Holtsós undir Eyjafjöllum um hádegið í dag, að sögn lögreglunnar á Suðurlandi. Aðeins er farið að bæta í vind undir Eyjafjöllum en aðeins austar er veðrið verra. 

Veðurstofan hefur gefið út gula viðvörun á svipuðum slóðum eða á Suðausturlandi og einnig á höfuðborgarsvæðinu, Ströndum, Norðurlandi vestra og á miðhálendinu. Appelsínugul viðvörun er á Norðurlandi eystra, Austurlandi að Glettingi og Austfjörðum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert