Haraldur með bestu fréttaljósmyndina

Haraldur Jónasson átti bestu mynd í fréttaflokki.
Haraldur Jónasson átti bestu mynd í fréttaflokki. mbl.is/​Hari

Árleg sýning íslenskra blaðaljósmyndara opnaði klukkan 15 í dag í Smáralind og við opnunina voru ljósmyndurum veitt verðlaun fyrir bestu myndir ársins 2018. Veitt voru verðlaun í 7 flokkum auk bestu myndar ársins.

Mynd ársins 2018 tók Heiða Helgadóttir, ljósmyndari Stundarinnar, og er …
Mynd ársins 2018 tók Heiða Helgadóttir, ljósmyndari Stundarinnar, og er það mynd af Adrían Valentín, einhverfum dreng sem situr í strætó og fylgist með umhverfinu. Ljósmynd/Heiða Helgudóttir

Mynd ársins 2018 tók Heiða Helgadóttir, ljósmyndari Stundarinnar, og er það mynd af Adrían Valentín, einhverfum dreng sem situr í strætó og fylgist með umhverfinu. Myndin er hluti af myndaseríu sem valin var myndasería ársins og fjallar um tvíburabræðurna Adam Eilíf og Adrían Valentín sem eru nýorðnir ellefu ára, að því er segir í tilkynningu frá Blaðaljósmyndarafélagi Íslands.

Sigtryggur Ari Jóhannsson átti bestu íþróttamynd ársins.
Sigtryggur Ari Jóhannsson átti bestu íþróttamynd ársins. Ljósmynd/Sigtryggur Ari Jóhannsson

Aðrir ljósmyndarar sem voru verðlaunaðir voru Haraldur Jónasson sem átti bestu mynd í fréttaflokki, Heiða Helgadóttir sem átti myndaröð ársins og portrait ársins, Sigtryggur Ari Jóhannsson sem átti bestu íþróttamynd ársins, Eyþór Árnason sem tók bestu umhverfismynd ársins, Aldís Pálsdóttir sem fangaði bestu mynd í flokki daglegs lífs og Hallur Karlsson sem tók tímaritamynd ársins 2018.

Sjö dómarar völdu 106 myndir á sýninguna í ár úr 840 innsendum myndum íslenskra blaðaljósmyndara. Þeir völdu þar að auki sigurmynd í hverjum flokki og mynd ársins. Dómnefndina í ár skipuðu þau Bára Kristinsdóttir, Brynjar Gauti Sveinsson, Jóhanna Guðrún Árnadóttir, Jón Guðmundsson, Pétur Thomsen, Þorkell Þorkelsson og Mads Greve kennari við Dmjx sem jafnframt var formaður dómnefndar, að því er segir í tilkynningu.

Sýningin stendur til 4. apríl í Smáralind. 

Hér má sjá allar myndirnar sem unnu til verðlauna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert