Vatnsleki í ofni 2 hjá PCC Bakka

Ofn 1 hefur verið stöðugur í talsverðan tíma, að því …
Ofn 1 hefur verið stöðugur í talsverðan tíma, að því er segir í tilkynningu. mbl.is/​Hari

Ofn 2 í kísilveri PCC Bakka hefur verið til vandræða og berst starfsfólk við vatnsleka frá kælikerfinu. Bregðast þarf við því með viðgerð og var slökkt á ofninum í gær.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá PCC Bakka Silicon á Facebook.

Neyðarskorsteinar ofnsins verða opnaðir fljótlega svo viðgerð geti farið fram, en ekki er búist við miklum reyk þar sem slökkt hefur verið á ofninum síðan í gær.

Ofn 1 hefur verið stöðugur í talsverðan tíma, að því er segir í tilkynningu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert