Stefnt að leiðréttingu bóta á næsta ári

Ásmundur Einar Daðason félagsmálaráðherra sat fyrir svörum á fundi velferðarnefndar …
Ásmundur Einar Daðason félagsmálaráðherra sat fyrir svörum á fundi velferðarnefndar um ágalla við útreikninga örorkulífeyris. mbl.is/Kristinn Magnússon

Tryggingastofnun getur ekki leiðrétt greiðslu örorkubóta til þeirra sem fengu greiðslur sínar skertar á grundvelli rangra útreikninga stofnunarinnar fyrr en fyrir því hefur verið veitt fjárheimild. Þetta kom fram í máli Ásmundar Einars Daðason félagsmálaráðherra á fundi velferðarnefndar Alþingis í morgun um athugasemdir umboðsmanns Alþingis vegna útreikninganna.

Sagði ráðherrann hins vegar gert ráð fyrir leiðréttingunni í fjármálaáætlun sem ríkisstjórnin kynnti um helgina og samkvæmt henni sé stefnt að því að leiðrétting greiðslna aftur í tíma verði á fjárlögum fyrir 2020.

Hins vegar sé það skilningur félagsmálaráðuneytisins að Tryggingastofnun hafi þegar byrjað að greiða á grundvelli réttra útreikninga. (Sjá athugasemd neðst).

Snýr málið að því að í lengri tíma hefur Tryggingastofnun, samkvæmt úttekt umboðsmanns Alþingis, reiknað örorkulífeyri til þeirra, sem hafa búið erlendis hluta ævinnar, með röngum hætti. Telur Öryrkjabandalag Íslands að þetta nái allt að tíu ár aftur í tíma.

Einstaklingur leitaði til umboðsmanns í kjölfar þess að úrskurðarnefnd almannatrygginga úrskurðaði að greiðsluhlutfall skyldi skert úr 47,14% í 21,79% á grundvelli útreiknings sem nú er sagður ekki í samræmi við lög.

Ásmundur sagði Tryggingastofnun aðeins þurfa tvær vikur til þess að hefja greiðslu leiðrétts örorkulífeyris, að því gefnu að fyrir því fáist fjárheimild. „Það er fullur pólitískur vilji til þess að þetta geti komið til framkvæmda sem fyrst.“

Þá kom einnig fram að talsverð vinna þurfi að fara í hvert tilvik leiðréttingar fyrir sig þar sem greiða þurfi úr flækjum í hverju máli fyrir sig. Tryggingastofnun hefur kynnt aðgerðaáætlun hvað þetta varðar og taki hún mið af því að hægt sé að fara yfir mál tíu einstaklinga á viku. Það er unnið samkvæmt þeirri áætlun að sögn ráðherrans.

Þá spurði Halldóra Mogensen, formaður velferðarnefndar og þingmaður Pírata, hver skýringin væri á því að ekki væri hægt að standa að lögbundnum greiðslum þó að fjárheimildir liggi ekki fyrir.

Sagði Ásmundur það alveg ljóst að ráðherra fari ekki með fjárveitingarvaldið, heldur Alþingi. Janframt séu það skýr skilaboð fjárlaganefndar þingsins og fjármálaráðuneytisins að ekki sé staðið að útgjöldum samkvæmt heimildum.

Halldóra Mogensen, formaður velferðarnefndar Alþingis.
Halldóra Mogensen, formaður velferðarnefndar Alþingis. mbl.is/Kristinn Magnússon

„Er það í alvöru þannig að okkur sé ófært að framfylgja lögum vegna þess að það eru ekki fjárheimildir fyrir því?“ spurði Halldóra aftur. Benti hún einnig á að það sé hægt að setja fjáraukalög og þegar hægt að hefja útreikningu leiðréttingarinnar.

„Fjárlög eru jafn há og önnur lög. Við getum ekki staðið að fjárútlátum á yfirstandandi ári án þess að fyrir því sé heimild,“ svaraði Ásmundur. „Við erum að vinda ofan af máli sem er mjög gamalt og erum að reyna að gera það af eins mikilli festu og hægt er.“

Ásmundur Einar Daðason upplýsti velferðarefnd Alþingis um að stefnt sé …
Ásmundur Einar Daðason upplýsti velferðarefnd Alþingis um að stefnt sé að því að hefja leiðréttingu greiðslna á næsta ári. mbl.is/Kristinn Magnússon

Uppfært kl 17:05

Borist hefur athugasemd frá félagsmálaráðuneytinu:

Félagsmálaráðuneytið vill koma því á framfæri að vegna misskilnings sem algerlega skrifast á sérfræðing ráðuneytisins kom fram á fundi með velferðarnefnd Alþingis, að nýir umsækjendur TR væru nú afgreiddir með öðrum hætti og í ljósi álits umboðsmanns Alþingis - en svo er ekki.

Ráðuneytinu er vel kunnugt um að TR bíður enn svars um að fá fjárheimild til að greiða samkvæmt nýju verklagi og á meðan hefur engu verklagi verið breytt. Á það bæði við um nýja umsækjendur á árinu og þá sem þegar fá greiðslur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert