Vél WOW lögð af stað frá Montréal

TF-PRO, vél WOW air.
TF-PRO, vél WOW air. Ljósmynd/Anna Zvereva

Flugvél WOW Air, TF-DOG, tók á loft frá flugvellinum í Montréal í Kanada klukkan 12.06 að staðartíma, 16.06 að íslenskum tíma, en hún var send af stað eftir að önnur vél félagsins var kyrrsett á vellinum.

Eins og mbl.is greindi frá í morgun var TF-PRO, vél WOW, kyrrsett á flugvellinum í gærkvöldi að beiðni leigusala vélarinnar. Farþegum sem far áttu með vél­inni, ásamt áhöfn, var ekið á hót­el í nótt og þeim til­kynnt að vegna „tækni­legra örðug­leika“ yrði flug­inu frestað. TF-DOG, sem ný­kom­in var úr flugi frá Frankfurt til Kefla­vík­ur, var send af stað til Montréal.

Samkvæmt áætlun átti kyrrsetta vélin að fara af stað til Keflavíkur klukkan 19.05 að staðartíma í gærkvöldi, og komast því farþegar nú í loftið um 17 tímum á eftir áætlun með annarri vél.

DV segist hafa heimildir fyrir því að búið sé að aflétta kyrrsetningu TF-PRO, en það hefur ekki fengist staðfest.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert