Glerbrot fannst í salsasósu

Glerbrot fannst í einni krukku Tostitos Chunky Salsa í stærð …
Glerbrot fannst í einni krukku Tostitos Chunky Salsa í stærð medium og hefur varan verið innkölluð.

Aðföng hafa tekið úr sölu og innkallað Tostitos Chunky Salsa, medium, í 439,4 gramma glerkrukkum. Ástæða innköllunarinnar er sú að glerbrot fannst í einni krukku.  

Í tilkynningu frá Aðföngum kemur fram að varan var til sölu í verslunum Bónus, Hagkaups og Super1 á tímabilinu 24. júlí 2018 til 26. mars 2019. Sérstök athygli er vakin á því að innköllunin varðar eingöngu best fyrir dagsetninguna 10. apríl 2019.  

Viðskiptavinum Bónuss, Hagkaups og Super1 sem keypt hafa vöruna er bent á að þeir geta skilað henni í verslunina þar sem hún var keypt gegn fullri endurgreiðslu. Aðföng biðja viðskiptavini verslananna sem kunna að hafa orðið fyrir óþægindum vegna þessa innilegrar afsökunar.

Nánari upplýsingar um vöruna:

Vöruheiti: Tostitos Chunky Salsa, medium

Strikamerki: 028400055987

Nettóþyngd: 439,4g (15,5 oz.)

Best fyrir dagsetning: 10. apríl 2019

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert