Vilja þriðjung í viðbót fyrir Herjólf

Vestmannaeyjaferjan Herjólfur á siglingu við Gdynia í Póllandi.
Vestmannaeyjaferjan Herjólfur á siglingu við Gdynia í Póllandi.

Skipasmíðastöðin Crist S.A. í Póllandi sem smíðar nýjan Herjólf hefur skyndilega á lokametrum verksins krafist viðbótargreiðslu sem nemur nærri þriðjungi af heildarverði skipsins. Skipasmíðastöðin ber fyrir sig að hönnun skipsins hafi breyst sem feli í sér aukinn kostnað. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vegagerðinni. 

Samningur aðila kvað á um smíðaverð upp á 26.250.000 evrur, síðan hefur verið samið um fjölda aukaverka, þar á meðal fulla rafvæðingu Herjólfs, alls upp á 3.492.257 evrur. Skriflegir samningar eru til um öll þessi aukaverk svo sem eðlilegt er.

Tafir hafa orðið miklar þrátt fyrir að í samningum um aukaverk hafi verið samið um lengdan verktíma. Tafabætur nema núna ríflega einni og hálfri milljón evra, samkvæmt útreikningum Vegagerðarinnar.

Samningsupphæðin ásamt samningum um aukaverk, ef horft er fram hjá tafabótum, gera lokaverð upp á rétt ríflega 29,7 milljónir evra eða um 4 milljarða ísl. kr. á genginu í dag.

Vilja 1,2 milljarða íslenskra króna í viðbótargreiðslu

Skipasmíðastöðin gerir nú hins vegar kröfu upp á heildarverð sem nemur 38.430.000 evrum eða ríflega 5,2 milljörðum ísl. kr. Krafan um viðbótargreiðslu, sem ekki hefur verið nefnd fyrr en nú, hljóðar upp á um 8,9 milljónir evra eða ríflega 1,2 milljarða ísl. kr. á gengi dagsins.

Það kom Vegagerðinni verulega á óvart að á lokastigum væri gerð þessi krafa um upphæð sem nemur um þriðjungi heildarverðsins. Þetta kemur sérstaklega á óvart þar sem smíðasamningurinn er alveg skýr í þessum efnum og á fundum með skipasmíðastöðinni hefur þetta aldrei verið nefnt.

Vegagerðin ítrekar að það er á engan hátt mögulegt að ganga að kröfu skipasmíðastöðvarinnar um viðbótargreiðslu sem nemur stórum hluta af heildarverðinu, sem stenst á engan hátt samninga aðila um smíði ferjunnar og sem hefur ekki verið nefnt fyrr en fyrir um mánuði síðan. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert