Hafnarfjörður hefur samstarf við UNICEF á Íslandi

Bergsteinn Jónsson og Rósa Guðbjartsdóttir. Bergsteinn segir í tilkynningu að …
Bergsteinn Jónsson og Rósa Guðbjartsdóttir. Bergsteinn segir í tilkynningu að hann bindi miklar vonir við samstarfið. Rósa segir að sáttmálinn verði viðmið bæjarins og rauður þráður í þjónustu gagnvart börnum og fjölskyldum í bænum. Ljósmynd/Aðsend

Bergsteinn Jónsson, framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi, og Rósa Guðbjartsdóttir bæjarstjóri Hafnarfjarðar, undirrituðu í dag samstarfssamning, en með honum hefur Hafnarfjarðarbær vinnu við að innleiða Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og stefnir bæjarfélagið að því að hljóta viðurkenningu sem barnvænt sveitarfélag UNICEF á Íslandi.

Með undirrituninni í dag skuldbinda fulltrúar Hafnarfjarðarbæjar sig til þess að setja upp „barnaréttindagleraugun“ þegar verk- og ákvarðanaferli eru skoðuð og að forsendur Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna gangi sem rauður þráður í gegnum þjónustu sveitarfélagsins, að því er segir í tilkynningu frá bænum.

Þriðja sveitarfélagið til að nýta sér líkanið

Hugmyndafræði barnvænna sveitarfélaga byggir á alþjóðlegu verkefni UNICEF, Child Friendly Cities, en það hefur verið innleitt í hundruðum sveitarfélaga um allan heim. Barnvæn sveitarfélög vinna markvisst að því að uppfylla réttindi barna og UNICEF á Íslandi styður sveitarfélögin í innleiðingu sinni á Barnasáttmálanum. Hafnarfjarðarbær verður þriðja sveitarfélagið til að nýta sér líkanið en Akureyri og Kópavogur eru einnig þátttakendur í verkefninu. 

Í kjölfar þess að Alþingi lögfesti Barnasáttmálann í febrúar 2013 hafa skapast umræður um hlutverk og ábyrgð íslenskra sveitarfélaga við innleiðingu sáttmálans.  Barnaréttarnefnd Sameinuðu þjóðanna og umboðsmaður barna hafa bent á að sveitarfélög séu órjúfanlegur þáttur í innleiðingu hans. Þótt ríkisvaldið beri formlega ábyrgð á að uppfylla Barnasáttmálann verður hann aldrei innleiddur nema í samstarfi við sveitarfélögin. Það eru sveitarfélögin sem annast stærstan hluta þeirrar þjónustu sem hefur bein áhrif á daglegt líf barna, segir ennfremur í tilkynningunni.

Jákvætt skref

„Þetta er mjög gleðilegt og jákvætt skref í þá átt að byggja upp breiðfylkingu sveitarfélaga á Íslandi sem láta sér mannréttindi barna varða, með Barnasáttmálann að leiðarljósi. Það hefur verið mikil eftirspurn frá sveitarfélögum landsins um stuðning við innleiðingu sáttmálans og við hjá UNICEF á Íslandi viljum gera það sem í okkar valdi stendur til að svara þeirri eftirspurn, “ segir Bergsteinn í tilkynningunni.

„Hafnarfjarðarbær er öflugt sveitarfélag sem sinnir þjónustu við stóran og fjölbreyttan hóp barna, við bindum miklar vonir við að samstarfið og hlökkum til að vinna með starfsmönnum og kjörnum fulltrúum bæjarins“, bætir hann við.

Þarf heilt þorp til að ala upp barn

„Börn eru í forgrunni hjá Hafnarfjarðarbæ og með þessum samning við UNICEF á Íslandi viljum við færa þá áherslu yfir í orð og ferla. Barnasáttmálinn er og verður okkar viðmið og rauður þráður í þjónustunni gagnvart börnum og fjölskyldum í bænum. Það þarf heilt þorp til að ala upp barn og þar spilar sveitarfélagið stórt hlutverk. Við viljum skapa samfélag þar sem börnum á öllum aldri líður vel og fái notið persónulegrar þjónustu, hvatningar og stuðnings í gegnum sín uppvaxtarár. Ég hlakka til samstarfsins og þess að leggja enn frekar línurnar í þessum málaflokki“ segir Rósa í tilkynningunni.

Heimasíða Unicef

Heimasíða Hafnarfjarðarbæjar

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert