Hrafnista tekur við Skógarbæ

Sjálfseignastofnunin Skógarbær, sem á og rekur samnefnt hjúkrunarheimili við Árskóga í Reykjavík, hefur undirritað samning við sjómannadagsráð, eiganda Hrafnistu, um að Hrafnista taki formlega við rekstri hjúkrunarheimilisins 2. maí næstkomandi. Rekstur og skuldbindingar starfseminnar munu áfram hvíla hjá Skógarbæ, en Hrafnista tekur yfir að stjórna og reka hjúkrunarheimilið. Þetta kemur fram í tilkynningu.

Í dag og á næstunni verða haldnir kynningarfundir fyrir starfsfólk, heimilisfólk og aðstandendur vegna breytinganna þar sem starfsemi og hugmyndafræði Hrafnistu verður kynnt. Mannauðsstefna Hrafnistu mun gilda í Skógarbæ líkt og á öðrum Hrafnistuheimilum og engin breyting verður á ráðningarsambandi við starfsfólk sem áfram verður við Skógarbæ. Starfseminni verður háttað í samræmi við hugmyndafræði Hrafnistu þar sem áhersla er lögð á andlega, líkamlega og félagslega vellíðan íbúanna.

Á samningstímabilinu, sem er til að byrja með til ársloka 2020, verður Hrafnista Skógarbæ sjálfstæður hluti rekstrarsamstæðu sjómannadagsráðs. Í samningnum felst einnig nýting og rekstur á hluta af húsnæði félagsmiðstöðvarinnar Árskóga sem samtengd er hjúkrunarheimilinu og rekin er af Reykjavíkurborg að hluta. Við lok núgildandi samningstíma endurnýjast samningurinn sjálfkrafa til tveggja ára í senn þar til nýr samningur hefur verið undirritaður eða honum sagt upp með samningsbundnum fyrirvara. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert