Nýta næstu daga til að ná samningum

Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri SA.
Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri SA. mbl.is/Eggert

„Við teljum að það hafi myndast góður umræðugrundvöllur, að því að gera kjarasamning,“ segir Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. 

Fyr­ir­huguðum verk­föll­um hót­el­starfs­manna og rútu­bíl­stjóra sem átti að hefjast á miðnætti í kvöld og standa í alls 48 klukku­stund­ir hef­ur verið af­lýst. Var það niðurstaðan eftir fundahöld VR, Efl­ing­ar, VLFA, VLFG, LÍV og Fram­sýn­ar með Sam­tök­um at­vinnu­lífs­ins hjá sátta­semj­ara.

Halldór leggur áherslur á að tveggja sólarhringa verkfallinu sem átti að hefjast á miðnætti hafi verið aflýst.

„Nú munum við halda áfram að þroska þær hugmyndir sem fram hafa komið og geta orðið grundvöllur kjarasamninga. Mest er um vert að það takist vel til, til þess að byggja áfram undir þann lífskjarabata sem náðst hefur á undanförnum árum,“ segir Halldór Benjamín.

„Það er óvissa í hagkerfinu núna við sjáum það bæði á væntingum heimila og stjórnenda fyrirtækja auk þess sem útflutningsatvinnuvegirnir hafa orðið fyrir talsverðum skakkaföllum vegna loðnubrests og tvísýnnar stöðu flugrekstrar. Aðilar eru sammála um að nýta næstu daga og helgina til að ná samningum.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert