Verkfalli aflýst

Frá síðasta verkfalli, fyrir viku.
Frá síðasta verkfalli, fyrir viku. mbl.is/Árni Sæberg

Fyrirhuguðum verkföllum um tvö þúsund hót­el­starfs­manna og rútu­bíl­stjóra sem áttu að hefjast á miðnætti í kvöld og standa í alls 48 klukkustundir hefur verið aflýst.

Var það niðurstaðan eftir fund VR, Efl­ing­ar, VLFA, VLFG, LÍV og Fram­sýn­ar með Sam­tök­um at­vinnu­lífs­ins hjá ríkissáttasemjara.

Fundurinn hófst klukkan 14.00 og lauk rétt í þessu. Boðað hefur verið til nýs fundar klukkan 13.00 á morgun. 

Þrátt fyrir að verkföllum sem fyrirhuguð voru á morgun og föstudag hafi verið aflýst munu fyrirhugaðar verkfallsaðgerðir í næstu viku haldast óbreyttar, náist samningar ekki. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert